Lýsingarhönnun Turnsins í Kópavogi, sem unnin var af íslenska lýsingarhönnunarfyrirtækinu Lisku og Exton undir forystu Arnars Erlendssonar, hefur verið tilnefnt til hinna virtu [d]arc awards 2025 í flokknum „Structures – High Budget.“
[d]arc hönnunarverðlaunin byggja á orðspori arc og darc, einhverjum víðlesnustu og virtustu hönnunartímaritum heims þegar kemur að lýsingarhönnun í verkefnum og vörum. Alþjóðleg dómnefnd lýsingarhönnuða tilnefnir (e. shortlist) verkefni úr 6 flokkum, sem fagaðilar á sviði lýsingarhönnunar, arkitektúr, innanhúsarkitektúrs og vöruhönnunar að kjósa loks um.
Lýsingarhönnun sem skarar framúr
Við lýsingarhönnun Turnsins var haft að leiðarljósi sterkt sjónrænt yfirbragð, samspil við umhverfi byggingarinnar og að skapa eftirtektarvert kennileiti. Verkefnið hefur hlotið verðskuldaða athygli fyrir faglega útfærslu, framsækna nálgun og lýsingu sem verður hluti af arkitektúr byggingarinnar.
Mikil viðurkenning fyrir íslenska hönnun og fagmennsku
„Við erum stolt af verkefninu fyrir Turninn í Kópavogi og mikil viðurkenning að hljóta þessa tilnefningu. Þetta er viðurkenning á metnaði og fagmennsku teymisins — og sýnir að íslensk lýsingarhönnun getur staðið jafnfætis bestu hugmyndum og lausnum í heiminum,“ segir Sigurjón Sigurðsson, framkvæmdastjóri lausnasviðs Exton.
Hvetjum fagaðila til að taka þátt í
Við hvetjum fagaðila til þess að taka á þátt í kosningunum sem lýkur 20. mars https://darcawards.com/vote/.
Allir sem greiða atkvæði fá aðgöngumiða að glæsilegri verðlaunahátíð sem fram fer 30. apríl hjá Fireworks Factory / Woolwich Works í London.


