Gengelec studio lausnir hjá Exton fyrir fagfólkið

Exton tekur við Genelec lausnum fyrir stúdíó og hljóðvinnslu

31/03/2026

Exton og Ofar efla þjónustu á Genelec hljóðbúnaði

Exton hefur nú tekið við Genelec lausnum fyrir stúdíó og hljóðvinnslu. Á sama tíma og Ofar mun sjá um aðrar lausnir fyrir fyrirtækjamarkað,

Með þessari skýru skiptingu verður öll þjónusta á Genelec sérhæfðari og skilvirkari.

Genelec Black monitor

„Genelec styrkir vöruframboð Exton í stúdíó- og hljóðvinnslulausnum og fellur vel að okkar áherslum. Með þessari breytingu tryggjum við skýra sérhæfingu og hraðari leið fyrir viðskiptavini að réttri lausn.“

Sigurjón Sigurðsson, framkvæmdastjóri lausnasviðs hjá Exton

Genelec studio lausnir

Mikill heiður að vera valin af Genelec 

Við hjá Exton erum afar stolt af þeim heiðri og þeirri viðurkenningu sem Genelec veitir okkur með þessari ákvörðun að fela okkur sölu og þjónustu á stúdíó- og hljóðvinnslulausnum (Professional Audio Monitoring).

Ofar mun áfram veita ráðgjöf, hönnun og uppsetningu hljóðkerfa í fjölbreyttum rýmum, svo sem verslunum, veitingastöðum, skrifstofum, menningarhúsum og skólum (Installed Sound) frá Genelec.

Með þessu móti getur markaðurinn á Íslandi notið sérhæfingar og bestu þekkingar bæði Exton og Ofar þegar kemur að vali á lausnum frá Genelec.

Hvað þýðir þetta fyrir viðskiptavini?

  • Óbreytt þjónusta fyrir fyrirtæki (Installed Sound) Ofar heldur áfram að vera traustur samstarfsaðili í B2B verkefnum — frá ráðgjöf og hönnun til uppsetningar og þjónustu.

  • Sérhæfðari ráðgjöf. Exton veitir sérfræðiráðgjöf, hönnun, val og þjónustu á lausnum fyrir studíó og hljóðvinnslu, þannig að viðskiptavinir fá sérhæfða ráðgjöf og búnað sniðið að þeirra þörfum.

  • Skilvirkari þjónusta. Með skýrri aðgreiningu verður þjónustan markvissari.

Deila:

Facebook
Twitter
Pinterest
LinkedIn
Smelltu

Tengdar fréttir

Exton á Verk og vit 2026

Exton sýnir spennandi nýjungar á Verk og vit 2026 frá mörgum af okkar helstu birgjum. Arkitektúrlýsingar fá Vivalyte líkt og notaðar eru á Turninn í

Turninn í Kópavogi graen lýsing

[d]arc awards – Turninn tilnefndur

Lýsingarhönnun Turnsins í Kópavogi, sem unnin var af íslenska lýsingarhönnunarfyrirtækinu Lisku og Exton undir forystu Arnars Erlendssonar, hefur verið tilnefnt til hinna virtu [d]arc awards