Exton býður skjái og skjálausnir fyrir fyrirtæki. Þegar birta á myndefni með stafrænum hætti þá er Exton öflugur samstarfsaðili með vandaðan búnað og heildarlausnir.
Neðar á síðunni getur þú séð nánari upplýsingar um þær skjálínur sem eru í boði.
Þegar kemur að því að velja skjái fyrir fyrirtæki og stofnanir eru mikilvægt að greina vel þarfir og hvað skjáirnir þurfa að þola bæði út frá staðsetningu þeirra og notkunartíma. Exton býður skjávörulínur frá Hisense með fjölbreytta eiginleika til að mæta þessum kröfum.
Skjálínur og hlutir sem eru í boði eru:
Komdu skýrum skilaboðum á framfæri utandyra með Hisense UHD stafrænum upplýsingaskjám. Skjáirnir bjóða framúrskarandi birtustig sem tryggir skýra og hnífskarpa mynd, jafnvel í beinu sólarljósi.
Skjáirnir eru hannaðir til að þola krefjandi aðstæður og gerðir til að þola erfitt veðurfar og varðir gegn skemmdarverkum. Sterkbyggðir skjáirnir þola högg vel, eru með varnarfilmu gegn veggjakroti og standast miklar hitasveiflur, auk þess að búa yfir orkusparandi tækni sem getur dregið verulega úr rafmagnskostnaði án þess að skerða afköst.
Sýndu lifandi og áhrifaríkt efni allan sólarhringinn með áreiðanlegum og viðhaldslitlum rekstri sem tryggir að skilaboðin þín njóti sín alltaf til fulls.
Hisense gagnvirkar skjálausnir bjóða framúrskarandi afköst og einstakt verðmæti. Með því að sameina eiginleika stafræns skjás, spjaldtölvu, rafrænnar töflu og fjarfundabúnaðar býður Hisense upp á fullkomna allt-í-einu skjálausn.
Öflugir örgjörvar og nýjasta snertitæknin tryggja fyrsta flokks notendaupplifun, á meðan hnökralaus þráðlaus samþætting gerir samvinnu bæði einfalda og virka.
Nýju GoBoard Live Pro og GoBoard skjáirnir eru Google-vottaðir og keyra á Android 16/14 stýrikerfi.




Ný VW25E LCD myndveggjalína frá Hisense veitir notendum hágæða myndupplifun, nánast án samskeyta þökk sé einstaklega mjóum ramma á skjáunum sem gefur efninu færi á að njóta sín til fulls.
Lausnin er hönnuð fyrir fjölbreytta notkun, allt frá eftirlits- og stjórnstöðvum til fundarherbergja, verslunarmiðstöðva og margra annarra rýma.
Hisense LCD myndveggir fanga athygli áhorfenda með skýrri og lifandi mynd, háþróuð myndvinnslutækni sem bætir skerpu, liti og birtuskil. Veggirnir bjóða upp á víð sjónarhorn og eru með glampavörn.
Með innbyggðu VisionInfo kerfi er einfalt að stýra myndbirtingu og fjarstýra skjánum hvar og hvenær sem er.
Exton býður vandaða og bjarta gluggaskjái frá Hisense. Þessir skjáir eru skjárinn með háu birtustigi og sérstaklega hannaðir fyrir gluggaútstillingar í verslunum, birtingu matseðla á veitingastöðum og sem upplýsingaskjáir t.d. í flughöfnum og við almenningssamgöngur. Hátt birtustig tryggir að efnið sé skýrt og vel sýnilegt, jafnvel í beinu sólarljósi, og að skilaboðin nái til viðskiptavina með miklum sýnileika og áhrifum.
Innbyggt Android 11 stýrikerfi og VisionInfo CMS efnisstýringarkerfið gera kleift að birta lifandi og fjölbreytt efni allan sólarhringinn og umbreyta gluggarýmum í áhrifamikla sjónræna miðla.
Hisense LED skjálausnir lyfta sjónrænni miðlun upp á hærra stig við allar aðstæður. Hvort sem markmiðið er að bæta upplifun viðskiptavina í verslunum, miðla mikilvægum upplýsingum í samgöngumiðstöðvum eða skapa áhrifamikið myndefni fyrir viðburði og almenningsrými, bjóða skjáirnir framúrskarandi afköst og áreiðanleika.
Með sveigjanlegum uppsetningarmöguleikum og einingabyggðri hönnun falla lausnirnar hnökralaust að ólíkum rýmum og eru einfaldar í rekstri. Þannig verður auðveldara að fanga athygli áhorfenda og koma skilaboðum skýrt og áhrifaríkt á framfæri.
Hisense utandyra LED skjálausnir opna nær óteljandi möguleika á að birta efni, hvort sem það er til upplýsinga, auglýsingar eða lifandi myndefni t.d. útsendingar frá viðburðum. Mögulegt er að velja fjölbreytt form eftir því hvernig stakir skjáir eru notaðir eða raðað saman. Það er t.a.m. hægt a vera með staka stóra skjái í hefðbundum hlutföllum en það er líka hægt að raða þeim saman í risa skjáfleti í alls konar hlutföllum eða gera skjálengjur t.d. meðfram íþróttaleikvöngum.
Ef þú vilt birta efni utandyra með stafrænum hætti þá er Exton með vandaða og hagkvæma lausn fyrir þig.
Hisense Digital Signage skjáir eru “Q-SYS Certified” vottaðir og samhæfir við Q-SYS stjórnkerfi. Þetta tryggir hnökralausa stýringu og sjálfvirkni fyrir Hisense atvinnuskjái innan Q-SYS Full Stack AV kerfisins.
Með Hisense Display virkni er mögulegt að stýra Hisense atvinnuskjám í gegnum Q-SYS. Þannig má kveikja á skjánum með Wake-on-LAN, kveikja og slökkva sjálfstætt á skjátækinu og myndfletinum, skipta á milli merkjagjafa og stjórna hljóðaðgerðum.
VisionInfo frá Hisense er skjástýringarkerfi fyrir stafræna skjái sem er sveigjanleg, hagkvæm og óendanlega skalanleg fyrir notendur. Kerfið er skýjalausn sem gerir notendum kleift að nýta kerfið hvar sem þeir komast í netsamband. VisionInfo inniheldur heildstæða CMS-efnisstjórnun og háþróaða eiginleika fyrir fjarstjórnun skjáa.
Hisense utandyra LED skjálausnir opna nær óteljandi möguleika á að birta efni, hvort sem það er til upplýsinga, auglýsingar eða lifandi myndefni t.d. útsendingar frá viðburðum. Mögulegt er að velja fjölbreytt form eftir því hvernig stakir skjáir eru notaðir eða raðað saman. Það er t.a.m. hægt a vera með staka stóra skjái í hefðbundum hlutföllum en það er líka hægt að raða þeim saman í risa skjáfleti í alls konar hlutföllum eða gera skjálengjur t.d. meðfram íþróttaleikvöngum.
Ef þú vilt birta efni utandyra með stafrænum hætti þá er Exton með vandaða og hagkvæma lausn fyrir þig.
Tengdu USB-C sendinn við fartölvuna og deildu efni á stafrænu töfluna með einum smelli. Lausnin tryggir hratt og stöðt streymi og styður iOS, Android, Windows og macOS samtímis.
Samhæf tæki: AIO LED (HAIO136GE, HAIO163GE) og gagnvirk tafla (WM6FE).
WH3315 er færanlegur skjávag sem er hannaður fyrir 65–86 tommu gagnvirka Hisense skjái og sameinar einfalda uppsetningu og endingargóða hönnun.
Stillanlegt festingarkerfi tryggir öruggan og traustan stuðning, hvort sem vagninn er notaður í nútímalegum kennslustofum, fundarherbergjum eða starfsrýmum.
Samhæfar skjálínur og skjáir:
Athugið: Vagninn er hannaður fyrir gagnvirkar stafrænar töflur og stafræna upplýsingaskjái frá Hisense. Sjónvarpsfestingar fylgja ekki með.
LG færanlegu skjávagnarnir eru hannaðir fyrir 108″, 136″ og 163″ skjái. Vagnarnir eru einfaldir í samsetningu og bjóða upp á trausta, hentuga og færanlega festingarlausn fyrir kennslustofur og fundarherbergi.















