Reyk- og mistvélar umbreyta viðburðum og upplifun áhorfenda. Hjá Exton færðu allt sem til þarf, rétta tækið og þann vökva sem hentar hverju tilefni – fyrir svið, upptökuver, skemmtistaði eða minni rými.
Exton býður reykvélar frá eftirtöldum framleiðendum
Look Solutions
Look Solutions er einn stærsti framleiðandi mistur- og reykvéla í heiminum. Úrvalið er fjölbreytt, allt frá Tiny S og Unique 2.1 upp í vélar fyrir stærstu viðburði innan- eða utanhúss. Með DMX eða fjarstýringu, viftum og öðrum aukahlutum.
Fyrirtækið framleiðir einnig vatnsmiðaðan vökva fyrir ólík not og vélar, s.s. Standard Fog, Fluid, Tiny-Fluid, Unique Fluid (haze), Jet-Fluid og Cryo-Fog Fluid.
meira um Look Solutions
MDG Fog
MDG Fog framleiðir öflugar reyk- og mistvélar frá má finna víða í skemmtanaiðnaðinum og annars staðar, s.s. við æfingar hjá slökkviliðum.