Talað er um hljóðeinangrun þegar átt er við að lágmarka hljómburð milli nærliggjandi aðskildra rýma. Exton býður upp á ýmsar lausnir til þess að hámarka hljóðeinangrun, t.d. í léttum milliveggjum, milli hæða o.s.fv.
meira um hljóðvistarlausnir
Hljóðeinangrandi hurðir
Hljóðeinangrandi brunahurðir úr stáli með einagrunarstuðli (RW gildi) allt að 52dB. Fást bæði einbreiðar og tvíbreiðar. Hægt að sérsníða stærðir og velja á milli polyhúðunnar eða spóns.
Fjaðrandi stoðfestingar
Fjaðrandi stoðfestingar (e. „decouplers“) eru notaðar til þess að draga úr leiðni hljóðs í gegnum stoðir í t.d. gipsveggjum og timburgólfum. Góð fjöðrun getur skipt sköpum þegar kemur að því að lágmarka hljómburð gegnum veggi og gólf, sérstaklega á lægri tíðnum.
meira um hljóðvistarlausnir
Hljóðeinangrandi undirlag
Hljóðeinangrandi undirlög eru sett undir parket eða flot til þess að draga úr högghljóði sem borist getur milli hæði í gegnum gólfplötu. Exton býður upp á nokkur mismunandi korkundirlög sem henta mismunandi aðstæðum.