Hljóðdempun

Artnovion Hljóðvist

Hljóðdempun

Oft er talað er um hljóðdempun þegar átt er við að lágmarka bergmál og bæta hljómburð inni í rýmum. Exton býður upp á ýmis konar hljóðdempandi efni til þess að vinna gegn bergmáli og bæta hljóðvist.

Hljóðdempandi plötur

Hljóðdempandi plötur eru stílhrein og hagkvæm leið til þess draga úr bergmáli og bæta hljóðvist. Hægt er að velja úr ótal hönnunarmöguleikum frá ýmsum framleiðendum. Plöturnar er hægt að setja á bæði loft og veggi. Exton veitir sérfræðiráðgjöf varðandi staðsetningar og magn sem þarf til þess að rýmið hljómi sem best.

Artnovion Hljóðvistarplötur
Barrisol Dúkaloft

Strekkt dúkaloft

Exton býður mikið úrval af strekktum dúkalausnum, sem veita góða hljóðdempun og gefa mikla möguleika í lýsingu og arkitektúr. Ekki er takmark á breidd dúkanna. Dúkana er auðvelt að þrífa og er hægt að taka niður og setja upp aftur. Lausnir fyrir loftræstingu, baklýsingu, óbeina lýsingu, hátalara ofan við dúk o.fl.

Exton býður heildarlausnir og þjónustu í hljóðdúkum, allt frá hönnunarstigi að lokafrágangi.

Hljóðeinangrandi undirlag

Hljóðdempandi undirlög eru sett undir parket eða flot til þess að draga úr högghljóði sem borist getur milli hæði í gegnum gólfplötu. Exton býður upp á nokkur mismunandi korkundirlög sem henta mismunandi aðstæðum.

Hljóðeinangrun