Posted on

Einstakt kennileiti við sjóndeildarhringinn

Um leið og við óskum Eik fasteignafélagi innilega til hamingju með einstaklega vel heppnaðar endurbætur á Turninum við Smáratorg, þá þökkum við samstarfsaðilum okkar í verkefninu fyrir mjög ánægjulegt og árangursríkt samstarf.

Miklum umbótum lokið

Margir hafa tekið eftir vinnu við endurbætur á Turninum við Smáratorg sem í haust. Lýsing á glerverki leikur stórt hlutverk í endurbótunum og á stóran þátt í að skapa einstakt kennileiti.

Í upphafi leitaði Eik fasteignafélag til fimm fyrirtækja og óskaði eftir verðtillögum og hugmyndum fyrir lýsingu á ytra byrði Turnsins og varð tillaga Exton fyrir valinu. Nú  nokkru síðar má sjá einstaka og vel hannaða útkomu sem gerir þessa fallegu byggingu að kennileiti er vekur aðdáun.

Einstakt dæmi um þor og dirfsku við endurbætur

Hér á Íslandi mæðir gjarnan mikið á byggingum og reynt á ýtrustu þolmörk hönnunar, frágangs og efnis.

Það er því nokkuð alengt að leggja þurfi í viðamiklar endurbætur og viðhald en það sem er mun sjaldgæfara er að eigendur fasteigna nýtti sér þessi tækifæri til að endurhugsa hönnun, hlutverk og ásýnd þeirra líkt og Eik fasteignafélag gerði með Turninn. Það ber að hrósa félaginu fyrir áræðni, framsýn og þor að nýta tækifærið til að skapa einstakt kennileiti þegar ljóst var leggja þurfti út í talsverðar endurbætur. 

Vonandi sjáum við fleiri dæmi um slíka áræðni í framtíðinni. 

Hugmynd frá Exton varð fyrir valinu

Í upphafi fengu fimm fyrirtæki að skila inn inn verðtillögum og hugmyndum fyrir lýsingu á Turninum og varð tillaga Exton fyrir valinu. Nú  nokkru síðar má sjá einstaklega og vel hannaða niðurstöðu sem gerir þessa fallegu byggingu að kennileiti er vekur aðdáun.

Eitt af því sem veitti tillögu frá Exton sérstöðu er að lýsingin er utan á Turninum og hefur því ekki í för með sé ljósmengun inni í húsinu. Hugmynd Exton byggir á byggir á ljósum og stjórnbúnaði frá Vivalyte og glæsileg ljóshönnun er unnin af  lýsingarhönnunarfyrirtækinu LISKU.

Turninn í Kópavogi blá lýsing
Turninn í Kópavogi nordurljosa lýsing
Turninn í Kópavogi graen lýsing

Verkefnið í hnotskurn

Verkkaupi:

Verkkaupi: Eik Fasteignafélag
Ár: 2022-2025

Hlutverk Exton:

  • Grunnhugmyndavinna
  • Lýsingarbúnaður
  • Stjórnbúnaður
  • Uppsetning og forritun

Samstarfsaðilar:

  • Vivalyte
  • AV stumpf
  • Visual Production
  • Liska

Myndataka:

Lýsing glerhjúpsins er hluti af endurbótaverkefni á Turninum við Smáratorg. Markmiðið var að skapa kennileiti við sjóndeildarhringinn. ​​

Lýsingin vinnur með arkítektúrnum og er allur ljósabúnaður er hluti af lóðréttum gluggaprófílum Turnsins. Mjúkar en lifandi senur teikna sig utan um efri hluta hans í suður og austur átt.

Ljósasenur breytast að jafnaði eftir tíma dags en á sérstökum dögum birtast senur í takt við eðli daganna sem skapar þannig lifandi kennileiti.

Með því að láta birtu lýsingarinnar taka mið af tíma dags er stuðlað að orkusparnaði og aukinni endingu ljósabúnaðar. Þegar dimma tekur er lýsingin keyrð niður og slökkt yfir nóttina. Þannig er jafnframt ekki dregið úr óþarfa ljósmengun.

Ljósasenur eru fjölbreyttar og eru þær meðal annars notaðar til að sýna ýmsum málefnum stuðning, svo sem einstökum apríl, bleikum október o.fl., með því að nýta lýsinguna til að lýsa í takt við einkennisliti málefnanna. 

Ljós og stjórnbúnaður

Lausnin samanstendur af 40mm Neon LED borðum frá Vivalyte , sem eru RGBW-30K með innbyggðu  DMX, með 100 mm pixel sem gefur ljósasenum mikið svigrúm. Allur búnaðurinn er vatnsþéttur  IP 68 gerður fyrir mikið veðurálag. Borðinn er settur í sérhannaðann álprófíl sem festist við gluggakerfi  húsins.

Stjórnbúnaður er  frá Pixera  PIXERA ONE   bíður upp á  nær óendanlega möguleika í hönnun á ljósasenum, birtumagni, tímastillingum til að útkomann uppifylli kröfur lýsingarhönnuðar.

Til að gera lausnina sem einfaldast í notkun  fyrir húseigendur er notuð  CueCore3 – Visual Productions BV til að kalla upp ljósasenur sjálfvirkt og með einfalt vefviðmót.

Ljósasenur sem taka breytingum í takt við árstíð og tilefni

Lýsingin er sjálfvirk yfir allt árið og tekur breytingum í takt við árstíð og tilefni. Hér fyrir neðan eru dæmi um ýmsar ljósasenur á mismunandi tímum dags: 

Verðskulduð athygli erlendis

Lausnin og hönnunin hefur vakið verskuldaða athygli erlendis. Í nýjasta tölublaði Arc Magazine er að finna viðtal við Örn Erlendsson ljósahönnuð hjá LISKA. Í viðtalinu er fjallað um verkefnið allt frá hugmynd að veruleika og gefin innsýn í hugmyndafræðina, áskoranir og fleira.

Grein í ARC Magazine um ljós frá Vivalyte og Exton á Turninum í Kópavogi

Langar þig að vita meira?

Hafðu samband við okkur hjá Exton og við förum saman í gegnum þá möguleika sem ljósabúnaður frá Exton og samstarfsaðilum býður upp á.

Posted on

EVE KYNNIR SC2070 nýr hljóðvershátalari

SC2070 is a high-resolution near-/midfield Monitor that combines the eminent technologies of SC3070 and the TEC Award-winning SC4070 in a compact 2-way monitor.

Most prominent feature of SC2070 is a newly developed Air Motion Transformer RS7 which is the largest AMT used in a 2-way monitor. RS7 has been developed specifically for SC2070 to achieve a crossover frequency at 1800Hz that is astonishingly low for a 2-way monitor. The diaphragm area is 1.5 times larger in comparison to the tweeter’s membrane used in SC207.

High and upper midrange range frequencies are reproduced with unparalleled precision and resolution, revealing smallest nuances and assuring a midrange imaging at levels like those normally found in 3-way systems.

The SC2070 is a perfect work piece for mid-size professional and home recording studios where quality is paramount.

Key features:

  • Fully-fledged 2-way near / mid field monitor
  • Newly developed proprietary RS7 Air Motion Transformer sets the crossover frequency to low 1800Hz and provides a pristine reproduction of high- and upper midrange frequency
  • 6.5″ low frequency driver with glass-fibre coated honeycomb diaphragm provides powerful bass response
  • Sophisticated enclosure with an ultra-stiff front plate and bevelled cabinet edges reduces unwanted resonances and diffraction
  • 2 high-quality Class D amplifier with total output power of 250 W
  • Front-sided volume control and room EQ settings via SMART-knob enables perfect integration into every listening environment
  • Dimmable LED ring>> High-resolution 24bit/192kHz Burr-Brown A/D converter

Posted on

Þorrablót um víðan völl

Stærsta þorrablót landsins, Kópavogsblótið fór fram síðustu helgi í Kórnum og þar sá Exton um öll tæknimál. Ljós, hljóð og mynd. Notaðir voru 200 fjarstýrðir borðlampar sem gáfu þessu risastóra borðhaldi einstaklega flotta stemningu.

Sama kvöld fór fram þorrablót Stjörnunnar í Garðabæ sem Exton sá einnig um og helgina þar á undan vorum við með þorrablót KR og Keflavíkur. Framundan eru enn fleiri Þorrablót og önnur verkefni víðsvegar sem við erum gríðarlega spennt fyrir!