Posted on

Exton tekur við Genelec lausnum fyrir stúdíó og hljóðvinnslu

Gengelec studio lausnir hjá Exton fyrir fagfólkið

31/03/2026

Exton og Ofar efla þjónustu á Genelec hljóðbúnaði

Exton hefur nú tekið við Genelec lausnum fyrir stúdíó og hljóðvinnslu. Á sama tíma og Ofar mun sjá um aðrar lausnir fyrir fyrirtækjamarkað,

Með þessari skýru skiptingu verður öll þjónusta á Genelec sérhæfðari og skilvirkari.

Genelec Black monitor

„Genelec styrkir vöruframboð Exton í stúdíó- og hljóðvinnslulausnum og fellur vel að okkar áherslum. Með þessari breytingu tryggjum við skýra sérhæfingu og hraðari leið fyrir viðskiptavini að réttri lausn.“

Sigurjón Sigurðsson, framkvæmdastjóri lausnasviðs hjá Exton

Genelec studio lausnir

Mikill heiður að vera valin af Genelec 

Við hjá Exton erum afar stolt af þeim heiðri og þeirri viðurkenningu sem Genelec veitir okkur með þessari ákvörðun að fela okkur sölu og þjónustu á stúdíó- og hljóðvinnslulausnum (Professional Audio Monitoring).

Ofar mun áfram veita ráðgjöf, hönnun og uppsetningu hljóðkerfa í fjölbreyttum rýmum, svo sem verslunum, veitingastöðum, skrifstofum, menningarhúsum og skólum (Installed Sound) frá Genelec.

Með þessu móti getur markaðurinn á Íslandi notið sérhæfingar og bestu þekkingar bæði Exton og Ofar þegar kemur að vali á lausnum frá Genelec.

Hvað þýðir þetta fyrir viðskiptavini?

  • Óbreytt þjónusta fyrir fyrirtæki (Installed Sound) Ofar heldur áfram að vera traustur samstarfsaðili í B2B verkefnum — frá ráðgjöf og hönnun til uppsetningar og þjónustu.

  • Sérhæfðari ráðgjöf. Exton veitir sérfræðiráðgjöf, hönnun, val og þjónustu á lausnum fyrir studíó og hljóðvinnslu, þannig að viðskiptavinir fá sérhæfða ráðgjöf og búnað sniðið að þeirra þörfum.

  • Skilvirkari þjónusta. Með skýrri aðgreiningu verður þjónustan markvissari.

Posted on

Exton á Verk og vit 2026

Exton sýnir spennandi nýjungar á Verk og vit 2026 frá mörgum af okkar helstu birgjum.

Arkitektúrlýsingar fá Vivalyte líkt og notaðar eru á Turninn í Kópavogi vekur mikla athygli, þó svo Turninn sé meistaraverk þá eru aðrir möguleikar í hönnun nær óþrjótandi.

Hljóðvistalausnir fyrir Barrisol eru líka í mikilli sókn, eiginleikar loftadúka er mjög fjölbreyttir og bjóða upp fallegar og í senn mjög praktískar lausnir. Lausnir sem eru mjög sveigjanlegar og gefa hönnuðum nýja og skemmtileg möguleika. Framúrskarandi hljóðvist og nær takmarkalausir hönnunarmöguleikar.

Á sýningunni má sjá skjálausnir frá Hisense sem nýlega tillti sér á toppinn á lista yfir mest seldu skjái á heimsvísu í flokknum Interactive Flat Panel Displays (IFPD)*.

Á básnum hjá Exton má líka skjá byltingarkennda og umhverfisvæna gervigrasið sem valið er af sveitarfélögum og íþróttaklúbbum um allan heim sem er umhugað um heilsu og velferð iðkennda yngriflokka og leikmenn meistaraflokka.

Hisense gagnvirkir skjáir nr. 1 á heimsvísu skjár á skjástandi 1x1
Posted on

Hisense gagnvirkir skjáir nr. 1 á heimsvísu

Hisense gagnvirkir skjáir nr. 1 á heimsvísu

Við tilkynnum með stolti að Hisense er í 1. sæti á heimsvísu fyrir Interactive Flat Panel Displays (IFPD)*.

Þessi viðurkenning  sýnir sterka stöðu Hisense sem trausts tækniaðila fyrir menntun og samstarf á vinnustöðum um allan heim.

86” GoBoard Live Pro - Advanced Interactive Display

Þessar niðurstöður endurspegla þann stöðuga vöxt sem Hisense er í á heimsvísu, og getu til að mæta síbreytilegum og krefjandi kröfum sem skólar og fyrirtæki gera til gagnvirkra skjálausna.

Hisense gagnvirkir skjáir nr. 1 á heimsvísu skjár á skjástandi 1x1

Hisense er framúrskarandi valkostur í skjálausnum

Fyrir okkur hjá Exton þá styrkir þetta okkur enn frekar í þeirri vegferð að bjóða framúrskarandi skjálausnir á hagkvæmu verði. Þetta er ekki einungis staðfesting á  markaðshlutdeild, þetta er miklu fremur staðfesting á því trausti sem Hisense skjálausnir njóta um allan heim.

Gagnvirkir skjáir frá Hisense er framúrskarandi valkostur fyrir kennslustofur næstu kynslóðar, blandað fundarumhverfi og samstarf innan fyrirtækja þar sem hægt er að nýta nýjustu tækni við áhrifaríkari nálgun á myndefni en á sama með auðveldum hætti.

Áframhaldandi þróun stykir Hisense sem valkost til framtíðar

Hisense hefur lýst því yfir að þau munu leggja mikla áherslu á áframhaldandi þróun á þessu sviði skjálausna og bjóða framúrskarandi lausnir fyrir skóla, stofnanir og fyrirtæki sem sameina háþróaða virkni, eiginleika og auðvelt viðmót. Með því að velja Hisense hjá Exton geta viðskiptavinir byggt upp sveigjanlega nútímalega skjáinnviði sem styðja við starfsemina til framtíðar.

*Omdia 2025 Global IFP/Touch Display Unit Share Report (Excluding China)