Baklýst loft, eða dagsbirtuloft (e. „daylight ceiling“) eins og þau eru stundum kölluð gefa einstaka birtu og stækka rýmistilfinningu í viðkomandi rými.
Barrisol dúkaloftin og Vivalyte LED lýsing skila betri lýsingu
Engir skuggar
Með því að jafndreifa lýsingunni yfir allt loftið lágmarkast skuggamyndun og gerir það auðveldara að sjá hlutina í réttu ljósi.
Notaleg birta
Hægt er að velja heita, kalda eða stillanlega lýsingu auk þess sem hægt er að tengja dimmer við.
Hvernig er það gert?
LED línur eru settar upp í loft ofan við dúk
Við reiknum út þéttleikann á LED línunum sem þarf til m.v. hæð niður að dúk
Dúkur er strengdur upp í tveimur lögum
Efra lag af dúk eykur jafnleika lýsingarinnar, auk þess að koma í veg fyrir að blettir myndist í lofti v. ryks eða annarra agna.
Barrisol dúkana er jafnframt auðvelt að losa niður og setja upp aftur til að viðhalda lýsingu ofan við loft
Sérhæft LED
Vivalyte býður upp á LED einingar sem eru sérstaklega hagkvæmar fyrir baklýsingu og hámarka dreifingu ljóss með linsum framan á díóðum.