Exton hefur komið að hönnun og uppsetningu tækjabúnaðar fyrir útsendingu hjá vel flestum sjónvarpsstöðvum landsins. Einnig lausnum fyrir viðskipavini sem kalla á umfangsminni umgjörð án þess þó að slegið sé af kröfum um gæði
Avid Technology er leiðand í þróun hugbúnaðar- og vélbúnaðarlausna fyrir mynd- og hljóðvinnslu, miðlæg samvinnukerfi, fréttakerfi og fleira fyrir sjónvarpsútsendingar, kvikmyndagerð og tónlist.
Viðskiptavinir velja AWS Elemental Media Services til að flytja, undirbúa, vinna úr og afhenda myndefni. Lausnir AWS Elemental er hægt að keyra á eigin vélbúnaði eða sem skýlausn, og þannig auðveldað að bregðast við mismunandi álagi og framtíðarþörfum.
















Lausnir MOG Technologies auðveldar fjölmiðlafyrirtækjum, minni teymum og framleiðendum að afhenda eigið efni á skilvirkan og hraðan máta.
















NSCaster-X2 frá Nagasoft er ótrúlega nettur myndmixer með innbyggðum 13,3“ snertiskjá, grafík vinnslu, myndblöndun, PiP, Chroma Key, WiFi og 5G módemi. Hægt að tengja allt að átta myndavélar eða myndstrauma í FULL HD eða fjóra í 4K60P, yfir IP eða með fjórum innbyggðum HDMI/SDI tengjum.
Hentar vel sem færanleg myndstjórn fyrir útsendingu og/eða netstreymi.
















Exton er umboðsaðili TVU Networks sem framleiðir vélbúnað og hugbúnað fyrir þráðlausar sjónvarpsútsendingar í fullum gæðum. Allt frá TVU One, færanlegum 5G sendi með 6 innbyggðum SIM módemum og fleiri nettengjum upp í skýjalausnir þar sem öll útsendingarstjórn fer fram.
















Vizrt (áður NewTek) TriCaster er heil sjónvarpsstöð í einum kassa (studio in a box). Hægt er að stjórna útsendingu með öllu sem tilheyri með einni tölvu og streyma samhliða á margvíslegan máta. TriCaster kemur í ýmsum útfærslum, TriCaster Mini sem hentar í einfaldari útsendingar og allt upp í TriCaster 1 Pro og TriCaster 2 Elite fyrir 16-32 4K myndstrauma.















