Exton hefur verið valið sem umboðs- og þjónustuaðili Hisense atvinnuskjáa á Íslandi. Með samstarfinu tekur Exton að sér sölu, ráðgjöf og þjónustu á atvinnuskjálausnum Hisense fyrir íslensk fyrirtæki og opinberar stofnanir.
Viðurkenning á stöðu Exton fyrir sérhæfðar AV og skjálausnir
Hisense er einn stærsti framleiðandi skjáa og skjálausna í heiminum og hefur á undanförnum árum byggt upp sterka stöðu á alþjóðlegum B2B-markaði. Lausnir fyrirtækisins eru hannaðar sérstaklega fyrir atvinnunotkun, þar sem kröfur um stöðugan rekstur, áreiðanleika og endingu eru í forgrunni. Val Hisense á Exton sem samstarfsaðila telst því skýr viðurkenning á stöðu Exton á íslenskum markaði fyrir sérhæfðar AV- og skjálausnir.
Atvinnuskjáir eru ekki heimilissjónvörp
Í auknum mæli eru skjáir orðnir hluti af daglegum rekstri fyrirtækja, hvort sem er í verslunum, móttökum, samgöngumiðstöðvum eða viðburðarýmum. Hefðbundin heimilissjónvörp eru þó ekki hönnuð fyrir slíkt umhverfi og falla oft utan ábyrgðar þegar þau eru notuð í atvinnurekstri, auk þess sem líftími þeirra styttist verulega við stöðuga notkun.
Atvinnuskjáir Hisense eru hins vegar hannaðir fyrir allt að 24 klukkustunda daglega notkun. Þeir búa yfir meiri birtustyrk, betri hitastýringu og stuðning við faglega efnisstjórnun, sem dregur úr niðritíma og heildarkostnaði yfir líftíma búnaðarins.
Lausnir fyrir fyrirtæki og opinberar stofnanir
Exton mun bjóða atvinnuskjálausnir Hisense fyrir fjölbreytt notkunarsvið, þar á meðal íþróttamannvirki, hótel, viðburðahús, veitingastaði, sportbari, skrifstofur, verslanir, skóla og opinberar stofnanir. Lausnirnar ná meðal annars til auglýsingaskjáa, fundarskjáa, gagnvirkra lausna, LED-skjáa og upplýsingaskjáa fyrir bæði innanhúss- og utanhússnotkun.
Skjálausnirnar eru í mörgum tilvikum hluti af stærri heildarlausnum sem Exton hefur sérhæft sig í, þar sem lýsing, hljóð og mynd ásamt hljóðvist eru hönnuð saman sem ein samfelld lausn. Með þeirri nálgun er markmiðið að tryggja betri rekstrarhagkvæmni, stöðugri frammistöðu og samræmda upplifun í rýmum þar sem tæknibúnaður gegnir lykilhlutverki.
Exton hefur um árabil þjónustað fjölbreyttar atvinnugreinar, þar á meðal íþróttamannvirki, hótel, viðburðahús, veitingastaði, sportbari, stofnanir, skóla, skrifstofur og verslanir. Sameiginlegt markmið samstarfsins við Hisense er að bjóða lausnir sem eru hannaðar fyrir daglegan rekstur, með áherslu á áreiðanleika, einfaldari stjórnun, hagkvæmni og stöðug gæði yfir líftíma búnaðarins.
Hisense leggur mikla áhersla á umhverfismál
Hisense er ekki einungis leiðandi þegar kemur að tækni og gæðum heldur er fyrirtækið í fararbroddi þegar kemur að umhverfismálum. Hisense leggur mikið upp úr að starfa með eins umhverfisvænum og sjálfbærum hætti og mögulegt er. Stöðugt er leitað leiða til að minnka kolefnisspor og orkunotkun við framleiðslu og við notkun á búnaðinum. Skjáir og efnisspilarar frá Hisense þurfa mjög litla orku og mikilvægt fyrir fyrirtæki að bera saman orkuþörf slíkra tækja. Þegar fyrirtæki velja Hisence þá eru þau að velja umhverfisvæna lausn.
Fyrir frekari upplýsingar má nálgast ESG-skýrslu Hisense hér.
Alþjóðleg staða og sjálfbærni
Hisense er samstarfs- og styrktaraðili fjölda stærstu íþróttaviðburða heims og hefur komið að uppsetningu skjálausna á þekktum íþróttaleikvöngum í Evrópu. Fyrirtækið hefur jafnframt lagt aukna áherslu á sjálfbærni í starfsemi sinni og var meðal annars fyrst til að setja á laggirnar Zero Carbon Factory í skjáframleiðslu.
Með samstarfinu við Hisense styrkir Exton stöðu sína sem heildarlausnaaðili á sviði ljós-, hljóð- og myndlausna og eykur framboð sitt af atvinnuskjálausnum fyrir íslenskan markað.






Hisense ert sterkt í sportinu
Hisense er mjög sterkt þegar kemur að því að skjávæða íþróttaleikvanga og er vinnsæll samstarfsaðili hjá mörgum af stærstu íþróttaviðburðum og íþróttafélögum í heimi.
Viltu vita meira?
Hafðu samband við okkur hjá Exton og við förum saman í gegnum þá möguleika sem upplýsingaskjáir, myndefnistjórnun og skjálausnir sem Exton býður upp á frá Hisense hafa upp á að bjóða.
- hafðu samband

