Turninn Smáratorgi

Vivalyte logo hvitt. Exton er umboðs og þjónustuaðili Vivalyte á Íslandi

Vivalyte hefur komið að mjög mörgum glæsilegum ljósahönnunarverkefnum um allan heim og eitt af þeim er Turninn við Smáratorg í Kópavogi.

Turninn Smáratorgi lýsing frá Exton og Vivalyte

Turninn við Smáratorg í Kópavogi

Turninn í Kópavogi skartar núnar glæsilegri og fágaðri ljósahönnun frá Vivalyte sem byggir á Pixeline Flex-kerfi Vivalyte. Lausnin er nú einkennandi og óaðskiljanlegur hluti af byggingarlist turnsins og mögulegt að skapa fjölbreyttar litafærslur með mjúkum litablöndunum eða stökum litum.

Lýsingarhönnun er innblásnar af norðurljósum og himni Íslands en kerfið býður upp á mjög fjölbreyttar ljósasenur og litaval. Umbreytingin er stórkostleg og skapar einstakt kennileiti sem er í senn mjög fágað en á sama tíma mjög áberandi.

Ný yfirborðslýsing á Turninum við Smáratorg

Þegar Eik fasteignafélag hafð tekið ákvörðun um að fara í miklar endurbætur á Turninum í Kópavogi og að nýta þær sem tækifæri til að skapa einstakt kennileiti voru fimm fyrirtækjum boðið að senda inn grunnhugmyndir og verðtillögur. Af þessum fimm fyrirtækjum varð hugmynd og tæknibúnaður frá Exton í samstarfi við Vivalyte fyrir valinu.

Í framhaldi var lýsingarhönnunarstofan LISKA í Reykjavík var fengin til að hanna umbreytingu á glerhjúp Turnsins. Í upphafi var verkefnalýsingin einföld: Að breyta venjulegri byggingu í kennileiti sem yrði hluti af bænum, bæjarlínunni og menningu hans.

Áskorunin sem fylgdi var þó mun flóknari. Hvernig mætti hanna miðlunarhlið sem er tjáningarrík án þess að vera yfirgnæfandi, lifandi án þess að áreita, og einkennandi án þess að vera yfirdrifin.

Turninn Smáratorgi ljósasenur
Turninn við Smáratorg í Kópavogi fjólublá lýsing

Fyrir Örn Erlendsson, yfirljósahönnuð hjá LISKA, var upphafspunkturinn ekki tæknin heldur samhengi verkefnisins:
„Áður en nokkuð annað var skoðað spurðum við: Hvaðan er raunverulega horft á þessa byggingu? Í nálægð af götu, úr fjarlægð, eða sem hluta af sjóndeildarhringnum“

Í tilfelli Turnsins við Smáratorg var svarið fljótlega ljóst — það er efri hluti turnsins sem ræður ásýnd hans við sjóndeildarhringinn. Hönnunin beindist því ekki að öllum Turninum, heldur þeim hluta sem í raun mótar bæjarsvipinn.

Innblásið af norðurljósunum

Önnur grunn­hugmynd verkefnisins á sér djúp menningartengsl: Himinn norðurslóða og norðurljósin.

Hönnuður LISKU sá fyrir sér mjúka, hægfara hreyfingu — vísun í sveiflur norðurljósa fremur en dramatískar hreyfimyndir. Fremur en að kalla á athygli, átti kennileitið að lifa með umhverfinu.

Endanleg hönnunbyggir að lokum á lágstemdri miðlunar­lýsingu sem fellur að byggingarlist Turnsins með þægilegu sjónrænu vægi yfir daginn, en lifnar við þegar dimma tekur með notalegri nærveru.

Endurteknar tilraunir, þróun og þolinmæði

Ólíkt mörgum framhliðarlýsingaverkefnum er Turninn við Smáratorg, í eigu Eikar fasteignafélags, og ekki nýbygging heldur mannvirki þar sem unnið var að endurbótum. Þetta setti ákveðnar takmarkanir hvað varðaði burðarvirki, glerjun, festingar og skipulag. Staða sem hafðu verulega mótandi áhrif á verkefnið í heild sinni.

„Þetta verkefni fór í gegnum langt skipulags- og undirbúningsferli — meðvitað,“ útskýrir Örn. „Við prófuðum fjölda frumgerða við raunverulegar aðstæður. Allar ákvarðanir þurftu að taka mið af byggingunni sjálfri og umhverfinu.“

LISKA hóf víðtækt „RFI-ferli“ til að finna samstarfsaðila sem gætu ekki einungis útvegað tæknilausn, heldur jafnframt tekið þátt í þróun hennar. Ekki var um að ræða einföld vörukaup; nauðsynlegt var að vinna með framleiðanda og samþættingaraðila sem væru tilbúnir að kanna ólíka mögleika í stöðunni með teyminu.

Exton og Vivalyte tóku virkan þátt frá upphafi, bæði í lausnaleit, þróun frumgerða og prófunum.

Turninn Smáratorgi rauð lýsing
Turninn Smáratorgi rauð lýsing. Mynd af Turninum úr fjarska með blárri ljósasenu.

Fjölmargar útfærslur voru prófaðar: Hvað væri nægur birtustyrkur, án þess að verða yfirþyrmandi? Hversu mikla upplausn þarf til að ná mjúkum hreyfingum og litabreytingum? Hvaða áhrif hefur það á gluggaálag að bæta við lýsingu og festingabúnaði? Og hvaða áhrif mun íslenskt veðurfar hafa á endingu kerfisins til lengri tíma?

Þessi kerfisbundna nálgun skilaði árangri: lokalausnin fellur inn í ytra byrði Turnsins með eðlilegum hætti og stenst harðneskjulegt veðurfar án óþarfa  sjónræns áreitis.

Viða um Evrópu er miðlun á ytra byrði og byggingar­lýsing sífellt meira til skoðunar hvað varðar orkunotkun, sjálfbærni og ljósmengun. LISKA horfði mikið til þessara þátta.
„Við áttum opið samtal við sveitarfélagið, nágranna og aðra hagsmunaaðila. Við vildum hvorki vita af leiðarljósi né hreyfanlegum auglýsingavegg. Framhliðin er lifandi, en afar mjúk — smekkleg, látlaus og viðeigandi.“


 

Sköpun á einstöku kennileiti

Ljósstyrkurinn aðlagast kvöldhúminu, minnkar í takt við náttúrulega birtu og hverfur næturlangt þegar fáir eru á ferli. Sjálfbærni og ábyrgð eru órjúfanlegur hluti hönnunarinnar. Útkoman er hvorki vörumerkjaskilaboð né sjónarspil — heldur vandlega stilltur, lifandi þáttur í byggingarlistinni.

Ein fágaðasta útfærslan felst í því hvernig lýsingin fellur saman við byggingarlistina. Aðeins efri hluti Turnsins er með ljósalínum, forrituðum með litaflæði sem rennur mjúklega niður og tengir þær órofa við heildarmyndina. Lýsingin verður hluti af byggingunni, fremur en lag sem lagt er ofan á.

Turninn blá ljósasena
Turninn í Kópavogi

 

Yfir daginn hverfur búnaðurinn inn í framhliðina. Í rökkri lifnar Turninn við hægt og rólega. Úr bíl á ferð skynjar maður aðeins ljóma; standandi kyrr kemur hreyfingin í ljós. Mjúk, hæg og samhljóma.

Turninn við Smáratorg er nú nákvæmlega það sem verkkaupi, Eik fasteignafélag, setti sér markmið um að skapa, einstakt kennileiti, sem styrkir bjæarlínuna fremur en að drottna yfir henni.

Upplýsingar um verkefnið

Verkefnið: Turninn Smáratorg – Yfirborðslýsing
Staðsetning: Kópavogur, Iceland
Ljósahönnun: LISKA (Örn Erlendsson)
SamþættingaraðiliExton
Tæknilausn — Vivalyte Pixeline Flex 4025
Verklok: 2025
Eigandi byggingar: Eik fasteignafélag
Verkefnaflokkur: Forrituð, hreyfanleg ytri arkitektúrlýsing (ambient media framhlið)

Langar þig að vita meira?

Hafðu samband við okkur hjá Exton og við förum saman í gegnum þá möguleika sem ljósabúnaður frá Exton og samstarfsaðilum býður upp á.