Posted on

Hisense vann tvöfalt „Best of show“ á Infocomm 2025

Við erum afar ánægð og stollt að segja frá því að Hisense hlaut ekki ein, heldur tvenn verðlaun af hinum virtu „Best of Show“ verðlaunum frá Future Publications á InfoComm EXPO árið 2025.
Hisense vinnur tvöfallt á Infocomm Expo 2025 - Best of show.

Hisense er leiðandi afl í heiminum í dag

Verðlaunin undirstrika þá nýsköpun, gæði og þau áhrif sem AV-lausnir frá Hisense hafa á alþjóðlegum markaði og þann styrk sem samstarf Exton við Hisense kemur með inn á íslenskan markað.

Hisense vinnur tvöfallt á Infocomm Expo 2025 - Best of show. Verðlaunaskjálína frá InfoComm Expo 2025.

Best of show - Digital Signage Award

DP30FE línan frá Hisense

Nýja Hisense DP30FE línan hlaut viðurkenningu í Digital Signage flokknum fyrir einstaka eiginleika,  frammistöðu, fágaða hönnun og notendavæna virkni. Þessi nýja kynslóð af skjám skilar líflegum og fallegum myndum með mjúkum eðlilegum hreyfingum sem henta mjög vel fyrir fjölþætt verkefni hjá fyrirtækjum og stofnunum.

Einn ritstjóri fagtímarits á sýningunni orðaði það svo: 

„Skjáirnir hlutu Best of Show verðlaun veita framúrskarandi innsýn inn í nýjustu tækni sem er í boði og varpa ljósi á það besta sem AV-iðnaður hefur upp á að bjóða fyrir atvinnulífið.

Hisense vinnur tvöfallt á Infocomm Expo 2025 - Best of show. Verðlaunaskjálína í Tech & Learning - Tækni og Kennslu flokk á InfoComm Expo 2025.

Best of show - Tech & Learning

GoBoard Pro WM6FE línan frá Hisense

Í flokknum Tækni og kennsla „Tech Learning“ skar GoBoard Pro WM6FE línan sig úr sem allt-í-einu „all-in-one„ skjáir. Þessir gagnvirku skjáir sem hafa getu til að umbreyta kennsluaðferðum, samvinnunámi og þróun vinnuaðferð innan fyrirtækja og stofnana.

Þessi nýja lína er væntanleg í vor hjá Exton.

Viltu vita meira?

Hafðu samband við okkur hjá Exton og við förum saman í gegnum þá möguleika sem upplýsingaskjáir, myndefnistjórnun og skjálausnir sem Exton býður upp á frá Hisense hafa upp á að bjóða.

Posted on

Exton valið sem umboðs- og þjónustuaðili Hisense atvinnuskjáa á Íslandi

Exton hefur verið valið sem umboðs- og þjónustuaðili Hisense atvinnuskjáa á Íslandi. Með samstarfinu tekur Exton að sér sölu, ráðgjöf og þjónustu á atvinnuskjálausnum Hisense fyrir íslensk fyrirtæki og opinberar stofnanir.

Viðurkenning á stöðu Exton fyrir sérhæfðar AV og skjálausnir

Hisense er einn stærsti framleiðandi skjáa og skjálausna í heiminum og hefur á undanförnum árum byggt upp sterka stöðu á alþjóðlegum B2B-markaði. Lausnir fyrirtækisins eru hannaðar sérstaklega fyrir atvinnunotkun, þar sem kröfur um stöðugan rekstur, áreiðanleika og endingu eru í forgrunni. Val Hisense á Exton sem samstarfsaðila telst því skýr viðurkenning á stöðu Exton á íslenskum markaði fyrir sérhæfðar AV- og skjálausnir.

Atvinnuskjáir eru ekki heimilissjónvörp

Í auknum mæli eru skjáir orðnir hluti af daglegum rekstri fyrirtækja, hvort sem er í verslunum, móttökum, samgöngumiðstöðvum eða viðburðarýmum. Hefðbundin heimilissjónvörp eru þó ekki hönnuð fyrir slíkt umhverfi og falla oft utan ábyrgðar þegar þau eru notuð í atvinnurekstri, auk þess sem líftími þeirra styttist verulega við stöðuga notkun.

Atvinnuskjáir Hisense eru hins vegar hannaðir fyrir allt að 24 klukkustunda daglega notkun. Þeir búa yfir meiri birtustyrk, betri hitastýringu og stuðning við faglega efnisstjórnun, sem dregur úr niðritíma og heildarkostnaði yfir líftíma búnaðarins.

Hisense sportbar í Frankfurt. Atvinnuskjáir Upplýsingaskjáir og skjáir sem gerðir eru fyrir mikla notkun. Ákveðnar týpur eru gerðar til að vera í. notkun allan sólarhringinn 24/7.

Lausnir fyrir fyrirtæki og opinberar stofnanir

Exton mun bjóða atvinnuskjálausnir Hisense fyrir fjölbreytt notkunarsvið, þar á meðal íþróttamannvirki, hótel, viðburðahús, veitingastaði, sportbari, skrifstofur, verslanir, skóla og opinberar stofnanir. Lausnirnar ná meðal annars til auglýsingaskjáa, fundarskjáa, gagnvirkra lausna, LED-skjáa og upplýsingaskjáa fyrir bæði innanhúss- og utanhússnotkun.

Skjálausnirnar eru í mörgum tilvikum hluti af stærri heildarlausnum sem Exton hefur sérhæft sig í, þar sem lýsing, hljóð og mynd ásamt hljóðvist eru hönnuð saman sem ein samfelld lausn. Með þeirri nálgun er markmiðið að tryggja betri rekstrarhagkvæmni, stöðugri frammistöðu og samræmda upplifun í rýmum þar sem tæknibúnaður gegnir lykilhlutverki.

Exton hefur um árabil þjónustað fjölbreyttar atvinnugreinar, þar á meðal íþróttamannvirki, hótel, viðburðahús, veitingastaði, sportbari, stofnanir, skóla, skrifstofur og verslanir. Sameiginlegt markmið samstarfsins við Hisense er að bjóða lausnir sem eru hannaðar fyrir daglegan rekstur, með áherslu á áreiðanleika, einfaldari stjórnun, hagkvæmni og stöðug gæði yfir líftíma búnaðarins.

Hisense leggur mikla áhersla á umhverfismál

Hisense er ekki einungis leiðandi þegar kemur að tækni og gæðum heldur er fyrirtækið í fararbroddi þegar kemur að umhverfismálum. Hisense leggur mikið upp úr að starfa með eins umhverfisvænum og sjálfbærum hætti og mögulegt er. Stöðugt er leitað leiða til að minnka kolefnisspor og orkunotkun við framleiðslu og við notkun á búnaðinum. Skjáir og efnisspilarar frá Hisense þurfa mjög litla orku og mikilvægt fyrir fyrirtæki að bera saman orkuþörf slíkra tækja. Þegar fyrirtæki velja Hisence þá eru þau að velja umhverfisvæna lausn.

Fyrir frekari upplýsingar má nálgast ESG-skýrslu Hisense hér.

Alþjóðleg staða og sjálfbærni

Hisense er samstarfs- og styrktaraðili fjölda stærstu íþróttaviðburða heims og hefur komið að uppsetningu skjálausna á þekktum íþróttaleikvöngum í Evrópu. Fyrirtækið hefur jafnframt lagt aukna áherslu á sjálfbærni í starfsemi sinni og var meðal annars fyrst til að setja á laggirnar Zero Carbon Factory í skjáframleiðslu.

Með samstarfinu við Hisense styrkir Exton stöðu sína sem heildarlausnaaðili á sviði ljós-, hljóð- og myndlausna og eykur framboð sitt af atvinnuskjálausnum fyrir íslenskan markað.

Hisense ert sterkt í sportinu

Hisense er mjög sterkt þegar kemur að því að skjávæða íþróttaleikvanga og er vinnsæll samstarfsaðili hjá mörgum af stærstu íþróttaviðburðum og íþróttafélögum í heimi.

Hisense logos of clubs supported by Hisense technologie. Íþróttafélög sem eru studd með Hisense tækni.

Viltu vita meira?

Hafðu samband við okkur hjá Exton og við förum saman í gegnum þá möguleika sem upplýsingaskjáir, myndefnistjórnun og skjálausnir sem Exton býður upp á frá Hisense hafa upp á að bjóða.

Posted on

Einstakt kennileiti við sjóndeildarhringinn

Um leið og við óskum Eik fasteignafélagi innilega til hamingju með einstaklega vel heppnaðar endurbætur á Turninum við Smáratorg, þá þökkum við samstarfsaðilum okkar í verkefninu fyrir mjög ánægjulegt og árangursríkt samstarf.

Miklum umbótum lokið

Margir hafa tekið eftir vinnu við endurbætur á Turninum við Smáratorg sem í haust. Lýsing á glerverki leikur stórt hlutverk í endurbótunum og á stóran þátt í að skapa einstakt kennileiti.

Í upphafi leitaði Eik fasteignafélag til fimm fyrirtækja og óskaði eftir verðtillögum og hugmyndum fyrir lýsingu á ytra byrði Turnsins og varð tillaga Exton fyrir valinu. Nú  nokkru síðar má sjá einstaka og vel hannaða útkomu sem gerir þessa fallegu byggingu að kennileiti er vekur aðdáun.

Einstakt dæmi um þor og dirfsku við endurbætur

Hér á Íslandi mæðir gjarnan mikið á byggingum og reynt á ýtrustu þolmörk hönnunar, frágangs og efnis.

Það er því nokkuð alengt að leggja þurfi í viðamiklar endurbætur og viðhald en það sem er mun sjaldgæfara er að eigendur fasteigna nýtti sér þessi tækifæri til að endurhugsa hönnun, hlutverk og ásýnd þeirra líkt og Eik fasteignafélag gerði með Turninn. Það ber að hrósa félaginu fyrir áræðni, framsýn og þor að nýta tækifærið til að skapa einstakt kennileiti þegar ljóst var leggja þurfti út í talsverðar endurbætur. 

Vonandi sjáum við fleiri dæmi um slíka áræðni í framtíðinni. 

Hugmynd frá Exton varð fyrir valinu

Í upphafi fengu fimm fyrirtæki að skila inn inn verðtillögum og hugmyndum fyrir lýsingu á Turninum og varð tillaga Exton fyrir valinu. Nú  nokkru síðar má sjá einstaklega og vel hannaða niðurstöðu sem gerir þessa fallegu byggingu að kennileiti er vekur aðdáun.

Eitt af því sem veitti tillögu frá Exton sérstöðu er að lýsingin er utan á Turninum og hefur því ekki í för með sé ljósmengun inni í húsinu. Hugmynd Exton byggir á byggir á ljósum og stjórnbúnaði frá Vivalyte og glæsileg ljóshönnun er unnin af  lýsingarhönnunarfyrirtækinu LISKU.

Turninn í Kópavogi blá lýsing
Turninn í Kópavogi nordurljosa lýsing
Turninn í Kópavogi graen lýsing

Verkefnið í hnotskurn

Verkkaupi:

Verkkaupi: Eik Fasteignafélag
Ár: 2022-2025

Hlutverk Exton:

  • Grunnhugmyndavinna
  • Lýsingarbúnaður
  • Stjórnbúnaður
  • Uppsetning og forritun

Samstarfsaðilar:

  • Vivalyte
  • AV stumpf
  • Visual Production
  • Liska

Myndataka:

Lýsing glerhjúpsins er hluti af endurbótaverkefni á Turninum við Smáratorg. Markmiðið var að skapa kennileiti við sjóndeildarhringinn. ​​

Lýsingin vinnur með arkítektúrnum og er allur ljósabúnaður er hluti af lóðréttum gluggaprófílum Turnsins. Mjúkar en lifandi senur teikna sig utan um efri hluta hans í suður og austur átt.

Ljósasenur breytast að jafnaði eftir tíma dags en á sérstökum dögum birtast senur í takt við eðli daganna sem skapar þannig lifandi kennileiti.

Með því að láta birtu lýsingarinnar taka mið af tíma dags er stuðlað að orkusparnaði og aukinni endingu ljósabúnaðar. Þegar dimma tekur er lýsingin keyrð niður og slökkt yfir nóttina. Þannig er jafnframt ekki dregið úr óþarfa ljósmengun.

Ljósasenur eru fjölbreyttar og eru þær meðal annars notaðar til að sýna ýmsum málefnum stuðning, svo sem einstökum apríl, bleikum október o.fl., með því að nýta lýsinguna til að lýsa í takt við einkennisliti málefnanna. 

Ljós og stjórnbúnaður

Lausnin samanstendur af 40mm Neon LED borðum frá Vivalyte , sem eru RGBW-30K með innbyggðu  DMX, með 100 mm pixel sem gefur ljósasenum mikið svigrúm. Allur búnaðurinn er vatnsþéttur  IP 68 gerður fyrir mikið veðurálag. Borðinn er settur í sérhannaðann álprófíl sem festist við gluggakerfi  húsins.

Stjórnbúnaður er  frá Pixera  PIXERA ONE   bíður upp á  nær óendanlega möguleika í hönnun á ljósasenum, birtumagni, tímastillingum til að útkomann uppifylli kröfur lýsingarhönnuðar.

Til að gera lausnina sem einfaldast í notkun  fyrir húseigendur er notuð  CueCore3 – Visual Productions BV til að kalla upp ljósasenur sjálfvirkt og með einfalt vefviðmót.

Ljósasenur sem taka breytingum í takt við árstíð og tilefni

Lýsingin er sjálfvirk yfir allt árið og tekur breytingum í takt við árstíð og tilefni. Hér fyrir neðan eru dæmi um ýmsar ljósasenur á mismunandi tímum dags: 

Verðskulduð athygli erlendis

Lausnin og hönnunin hefur vakið verskuldaða athygli erlendis. Í nýjasta tölublaði Arc Magazine er að finna viðtal við Örn Erlendsson ljósahönnuð hjá LISKA. Í viðtalinu er fjallað um verkefnið allt frá hugmynd að veruleika og gefin innsýn í hugmyndafræðina, áskoranir og fleira.

Grein í ARC Magazine um ljós frá Vivalyte og Exton á Turninum í Kópavogi

Langar þig að vita meira?

Hafðu samband við okkur hjá Exton og við förum saman í gegnum þá möguleika sem ljósabúnaður frá Exton og samstarfsaðilum býður upp á.

Posted on

Exton er fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2025 samkvæmt Viðskiptablaðinu og Keldunnar

Samanburður á náttúrulegu grasi og gervigrasi

Lausleg þýðing á grein á heimasíðu Ground Force Strength:
Ground Reaction Forces in Sports: Comparing Natural Grass and Artificial Turf
www.groundforcestrength.com

Exton hefur verið valið eitt af fyrirmyndarfyrirtækjum í rekstri fyrir árið 2025 af Viðskiptablaðinu og Keldunni. Þetta er okkur mikill heiður og viðurkenning á gengi félagsins sem er í stöðugri sókn og þróun nýrra viðskiptaleiða.

Hvað þarf til að teljast til fyrirmyndar?

  • Rekstrarárin 2024 og 2023 liggja til grundvallar en tekið er tillit til rekstrarársins 2022.
  • Afkoma þarf að hafa verið jákvæð.
  • Tekjur þurfa að hafa verið umfram 50 milljónir króna.
  • Eignir þurfa að hafa verið umfram 90 milljónir króna.
  • Eiginfjárhlutfall þarf að hafa verið umfram 20%.
  • Aðrir þættir metnir af Viðskiptablaðinu og Keldunni. Til dæmis skil á ársreikningi og rekstrarform.*

*Keldan

Hér má nálgast lista yfir fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2025